Behold the Stifmeister is here!
21.03.2006 13:37:55 / stefans

Top 100 listinn

61. David Bowie - Space Oddity
Ekki veit ég hvað meistari Bowie var að hugsa þegar hann samdi þetta lag. Kanski var hann bara einmann og fanst hann vera geimfari. En engu að síður þá er þetta alveg æðislegt lag. Það vill svo til að ég var svo heppinn að ég hitti meistarann í Gautaborg árið 2003. Ég beið í röð fyrir utan plötubúð í 6 tíma (skrópaði meira að segja 3 tíma) til að fá að heilsa snillingnum og fá plötuna Heathen áritaða, já ég veit ég er nörd og á mér ekkert líf. En það var samt magnað að hitta hann en þeir sem pæla ekkert í tónlist skilja ekki hvernig maður nennir þessu. Ég ætla bara að leyfa þeim að hneykslast í friði.

62. Jimi Hendrix - Hey Joe
Ætli Joe hafi verið félagi hans Jimi? Hver veit. "Hey Joe, I said where ya goin' with that gun in your hand? I'm goin' down to shoot my old lady now.
You know I caught her messin' 'round with another man." Er þetta kanski hin eina og sanna Foxy Lady sem hann er að fara að skjóta niður eftir framhjáhald...

63. Bright Eyes - We Are Nowhere And It's Now
Snillingurinn Conor Oberst vakti fyrst athygli aðeins 14 ára gamall. Þessi ungi singer songwriter er í dag orðinn 26 ára gamall og hefur margt gerst síðan þá. Hann hefur náð að gefa út heilar 6 plötur undir nafninu Bright Eyes en sú seinasta er alveg frábær. En hún heitir I'm Wide Awake It's Morning, en þetta lag er einmitt að finna á henni. Ég mæli með því að þeir sem hafa áhuga á góðri singer/songwriter tónlist kynni sér hann nánar því það er ekki neinn venjulegur snillingur hér á ferð.

64. Bob Dylan - Mr. Tambourine Man
Já það ættu allir að þekkja þetta lag. Skemmtilegt lag enda eru textar hans Bob alltaf sérlega skemmtilegir og vel smíðaðir! Það verður væntanlega stemming að sjá Dylan á Roskilde festival. Hef nú reyndar séð hann áður, en það var í Skandinavium í Gautaborginni. Það var nú samt ekkert svaka stuð. Ég varð hálfpartinn fyrir vonbrygðum en það tók stemminguna algjörlega að vera svona langt frá sviði eins og við félagar vorum.

65. Van Morrison - Brown Eyed Girl
Já enn eitt sígilt lag. En þetta er eina lagið með Van the Man sem komst á listann. En hið stórskemmtilega lag Jackie Wilson Said datt út á síðustu stundu. Það kunna allir ungir sem aldnir textan við þetta stórskemmtilega lag. Enda vinsælt lag þegar kassagítarinn er tekinn fram í partý eða útilegum einhverstaðar í móanum. Shalalalalala la di da.....

66. Johnny Cash - Hurt
Já þegar maður heyrir þetta lag þá sannfærist maður um það að Johnny hafi virkilega skorið sig til blóðs til að geta sungið þetta lag því maður finnur virkilega sársauka hans í þessu lagi. Enginn maður hefur náð að sannfæra mann eins mikið um það og hann Johnny gerði. En eins og flestir hafa eflaust tekið eftir þá hefur Cash æði farið um allan heim og allir allt í einu orðinir svaka Cash aðdáendur. Sem mér finnst persónulega bara fyndið. Fólk úr öllum áttum að halda því fram að það hafi hlustað á Cash í ára raðir. Hehehe. Jæja en ég verð nú bara að viðurkenna það að ég á ekki nema best of diskinn og byrjaði ekki að hlusta á hann fyrr en ég heyrði þetta lag í útvarpinu fyrir 2 árum. Enda var það svo grípandi að maður varð hlusta meira á þennan snilling.

67. Elvis Presley - Can't Help Falling In Love
Elvis is alive! Já en bara í gegnum alla ógleymanlega tónlist sem hann skildi eftir sig. Þeir sem halda öðru fram eru fávitar. En þetta er eitt af 2 lögum eftir "The King" sem komust inná listann mikla. En hitt lagið skilar sér inn mun seinna. Ég vill meina að það sé ekki ein söngrödd í heiminum fyrr og síðar sem kemst nálægt snilldar rödd Elvis.

68. Pink Floyd - Another Brick In the Wall (Part II)
"We don’t need no education, we don’t need no thought control." Já þetta sagði ég við kennarann minn í sögu. En þetta á sérstaklega við kenningar Darwins. Þær eru alltaf kenndar í öllum vestrænum samfélögum. En það eru aðeins 10% jarðarbúa sem trúa á darwinisman. Það finnst mér frekar skrítið. En ég er ekki að segja það að ég sé eitthvað á móti kenningum Darwins en mér finnst að það ætti að kenna hugmyndir annara líka þar sem að svona fáir trúa þessu. En þetta lag fjallar einmitt um þetta. Við erum forrituð í skólanum til að hafa ákveðnar skoðanir og trúa öllu sem sagt er gagnrýnislaust. "All in all you’re just another brick in the wall."

69. Ryan Adams - La Cienga Just Smiled
Ef ég hugsa: fallegt lag, þá dettur mér fyrst í hug nafnið Ryan Adams. Því ég veit ekki hvar þetta endar hjá honum. Hann er búinn að gera svo mörg falleg lög að það er alveg með ólíkindum. Hann virðist aldrei ætla hætta að spýta út úr sér frábærar plötur á færibandi. Þetta lag er að finna á plötunni Gold. En meira um meistara Ryan seinna.

70. Radiohead - Exit Music For A Film
Margir hugsa kanski: Hvaða lag er þetta? En þetta lag er á hinni mögnuðu plötu O.K. Computer. En það sennilega ekki margir tekið eftir þessu lagi. En ég gerði það ekki fyrr en ég var búinn að eiga þennan disk í mörg ár. Maður þarf að spila lagið svakalega hátt til að skilja það hversu mikil snilld það er! Þetta lag er alveg stór magnað þegar maður uppgötvar það!

Jack Daniels skrifaði
Vá það er heill mánuður síðan ég skrifaði hérna!!! Usss.. já .. maður er búinn að vera svo busy.. og ekki fer það batnandi. Enda eru próf framundan! En ég ætla samt að reyna að halda áfram með listann.
Eskimóinn skrifaði
Vá hendrix, radiohead, bob dylan, meistari cash.... ég fíla listann (sérstaklega þar sem bowie kom þarna fyrst :).... en elsku drengur hættu að troða ryan adams þarna inn, maður verður hálf þunglyndur
Jack Daniels skrifaði
Heyrðu góða! Ryan er mesti snillingur í heimi!!! Hann tröll ríður öllum!!! Nefndu einn tónlista mann sem hefur afrekað það að gefa út 3 frábærar plötur á einu ári þ.á.m. eina tvöfalda! Realize! Ryan is the greatest!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.