Behold the Stifmeister is here!
31.10.2006 18:22:36 / stefans

Top 100 listinn

1. Ryan Adams - Oh My Sweet Carolina
Já það er sennilega ekki til nema svona 5 manns í heiminum sem eru sammála mér þegar kemur að eftsta lagi listans. En mér er svosem nett sama! Mín sérviska og ég fíla þetta lag meira en nokkuð annað. Ryan er að mínu mati besti tónlistarmaður í heiminum. Þetta lag er að mínu mati fallegasta lag í heimi. Ótrúlega flottur texti og einstaklega vel flutt af honum og sé ég ekki fyrir mér neinn sem gæti gert það betur. Allt sem Ryan snertir verður að gulli enda gaf hann líka frá sér hreint frábæra plötu sem nefnist Gold. En hún ýtti honum almennilega út í sviðsljósið. Gold er jafnframt fyrsta platan með honum sem ég eignaðist og ég byrjaði að hlusta á hana ári eftir að hún kom út 2001. Það var félagi minn í menntaskóla sem kom mér inná það að byrja að hlusta á Ryan og nú er hann uppáhalds tónlistarmaðurinn minn. En þetta lag er á fyrstu plötu hans, en hún nefnist Heartbreaker og er að mati flestra aðdáenda besta plata hans og ég er bara algjörlega sammála því. En mig langar til að bæta við svona í lokin smá pistil eftir uppáhalds rithöfund minn, hann Nick Hornby. En hann virðist hafa ágætis álit á honum.

"Some people are at their best when they're miserable. Ryan Adams Heartbreaker album is, I suspect, the product of a great deal of pain, and "Oh My Sweet Carolina" is its perfect, still centre, its faint heartbeat, a song so quiet that you don't want to breathe throughout its duration. (It helps that Adams got Emmylou Harris, the best harmony vocalist in the history of pop music, to sing with him on it.) On Adams's next album, Gold, he seems to have cheered up, and through that's good news for him, it'sbad news for me. His upbeat songs are fine, but they sound a lot like other people's upbeat songs (you can hear the cheeriest incarnations of the Stones, Dylan and Van Morrison all over Gold); his blues gave him distinction.

Fólk myndar oft mikil tilfinningartengsl við tónlist og oft rifjast gleði stundir upp fyrir manni þegar maður heyrir eitthvað lag sem maður hefur ekki heyrt í langan tíma. Lagið þarf ekki alltaf að vera gott til að maður fíli það en það getur bara einfaldlega verið vegna þess að það minnir á góðar stundir sem maður hefur upplifað. Svo geta sumar plötur einfaldlega hjálpað manni í gegnum erfið tímabil í lífinu. En þetta gerir músíkina svo skemmtilega, hún er minningar, lífstíll, tilfinningar osf.
Já ég gæti endalaust skrifað um þetta lag og þessa plötu og bara tónlist almennt en ég ætla ekki að gera það núna. En mig langar að enda þetta á frábæri setningu úr laginu: "I've never been to Vegas but I've gambled up my life"

2. Oasis/Ryan Adams - Wonderwall
Já sumir hugsa eflaust: "Hvað er hann að troða Ryan Adams þarna inn?" En það er einfaldlega vegna þess að mér finnst hans útgáfa svo ótrúlega góð að hann verður að fá að standa þarna með. Liam sjálfur sagði að coverið hans Ryans hafi verið svo gott að hann ætlaði að gera cover af coverinu. Hehe, hljómar furðulega en svona er þetta. En útgáfan hans Ryans er mun hægari en orginalið og gefur Ryan því sérstaka tilfinningu og tón. Já hvað er svo "undraveggur" ? Ekki veit ég en það skiptir svosem litlu máli því maður þarf ekki alltaf að skilja allt það sem skrifast í textum laga. En ég hugsa að þetta sé einfaldlega um mikilvægi þess að hafa einhvern traustan aðila í lífi sínu, einhvern sem maður getur alltaf stuðst við og talað við þegar maður á í erfiðleikum eða þarfnast ráðleggingar. En Noel hefur sagt það að þetta lag sé um ímyndunar vin sem kemur og bjargar manni frá sjálfumsér "You're gonna be the one that saves me". Ef Ryan er uppáhalds tónlistarmaðurinn minn þá eru strákarnir í Oasis uppáhalds hljómsveitin mín. Enda er þessi listi fullur af lögum þeirra, að mati sumra yfirfullur. En þeir um það mér er svosem skítsama =). Nefnið bara eina hljómsveit sem getur fyllt heilu íþrótta leikvanga með fólki þó svo að það sé ekki einsusinni víst að aðal söngvarinn mæti á svæðið.

3. Jeff Buckley - Hallelujah
Já hvað get ég sagt Jeff Buckley... þvílíkur snillingur. Það er varla trúandi að hann hafi verið frá þessari plánetu. Þetta lag er svo fallegt að ég er alveg viss um að ef himnaríkí er til þá er þetta lag spilað þar á repeat. En það var nú ekki Guð sem samdi það heldur var það Leonard Cohen sem gerði það. En það verður bara að segjast að hann á bara ekkert í því, Jeff Buckley gerir það gersamlega að sínu eigin lagi með þessari ótrúlegu útfgáfu af því. Það er varla hægt að deila um það að þetta lag á að vera á top 10 lista yfir bestu lög alltra tíma. Ef manni finnst þetta lag lélegt þá mæli ég með því að fara bara og láta loka sig inná geðveikra hæli. Því það hlýtir bara að vera eitthvað stórkostlegt að hjá fólki sem finnst þetta ekki fallegt. Ég hef sagt það hér áður að það sé synd að snillingar líkt og Jeff Buckley virðast alltaf deyja ungir. Það hefði eflaust verið yndislegt að fá fleyri plötur frá kappanum. En þetta lag er á plötunni Grace en hún er að mínu mati ein sú allra besta sem komið hefur út, hún er allaveganna mjög hátt skrifuð hjá mér enda eru 3 lög af plötunni meðal 21 efstu sæta.

4. John Lennon - Imagine
"Imagine there's no Heaven It's easy if you try, no hell below us, above us only sky, imagine all the people living for today". Er hægt að byrja þetta öðruvísi? Held ekki. En það finnst mörgum sjást klisjukennt að vera með þetta lag hérna. En staðreyndin er alltaf sú að þetta er stórmagnað lag og verður aldrei breyting þar á. Fá lög sem hafa vakið jafn mikla athygli eins og þetta. Þetta er svo mikil gagnrýni á lifnaðar hátt okkar í vestur þjóðum. Og þetta á ekki síst við núna þegar græðgin og lífsgæða kapphlaup manna hér á landi virðist ekki eiga sér nein takmörk. Ég held að menn ættu aðeins að hugsa útí setninguna "Imagine all the people living for today". En það eru fæstir sem gera það. Fólk kýs frekar að vinna og vinna frameftir og um helgar til að geta keypt Landcruiser í stað þess að eyða frekar góðum stundum með fjölskyldu sinni og kynnast börnunum sínum. Ég held að þetta lag mætti vera spilað meira í útvarpinu til að minna fólk aðeins á það að slaka bara á. Ég er hérmeð að segja að ég sé eittvað breytast í kommúnista og allir eiga að sitja útá túni og reykja friðarpípu. Mér finnst ekkert að því að vinna og vera duglegur og eiga fullt af skemmtilegum hlutum, en það eru til takmörk fyrir öllu og menn ættu frekar að reyna að finna ballans á milli þess að vinna og að eyða góðum stundum með fjölskyldu og vinum.

5. Radiohead - Paranoid Android
Alveg klikkað lag! Ofarlega hjá flestum held ég. O.K. Computer er sennilega besta plata allra tíma, en þar er að finna hvern smellinn að fætur öðrum. En þetta lag skarar alveg fram úr. Ekki mörg lög sem ná að vera með eins mikil kafla skipti og glás af hljóðum í einn graut og ná samt að brillera með eintómri snilld. Það á að hlusta á þetta lag hátt! Enda var maður alltaf að uppgötva ný hljóð í laginu þó svo að maður hafi hlustað á það margsinnis. Það var sko bilað að sjá þetta live! Alveg hápunktur tónlistar hátíðar að sjá þetta á sviði.

6. Pink Floyd - Comfortably Numb
Ég fæ gæsa húð þegar ég sé þetta lag á tónleika dvd disknum P.U.L.S.E. Já ég er ekki að ýkja ég fæ gæsahúð! En þetta lag er svo flott live og svo magnað að maður hefur ekki séð neitt sem kemst nálægt því. Það er sko eitthvað sem mig langar ótrúlega mikið til að upplifa. Pink Floyd live. Ég nennti nú ekki að fara á Roger Waters, enginn David Gilmour. Þá er þetta bara ekkert alvöru! En ekkert band hefur komist nálægt Pink Floyd í sviðsmyndum og ljósashow'i. Það er alveg öruggt! Alltaf hreynt yfirburðar upsetning á tónleikum og alveg geðveikislega flott.

7. Led Zeppelin - Stairway To Heaven
Já einhver dissaði Zeppelin, hmm nefnum engin nöfn... En það er ekki hægt að segja annað en að þetta er sennilega flottasta rokk ballad sem heyrst hefur. Og ekki hægt að deila um að Zeppelin voru frumkvöðlar og mynduðu nýja stefnu í tónlistinni. John Bonham var líka með betri trommurum sem uppi hafa verið. En það kemur svosem ekkert vel fram í þessu lagi. En þeir sem hafa gaman af flottum trommuleik ættu að tékka á laginu Moby Dick. En aftur að laginu en það er mjög sérstakt og hvílir mikill leyndardómur yfir því og menn hafa lengi verið að velta því fyrir sér hvað það fjalli um. En sú skýring sem ég tel vera réttust er einfaldlega bara að það fjallar um græðgi. En það á að vera skrifað um konu sem fær allt sem hún vill án þess að gefa neitt tilbaka. Eitt áhrifaríkasta og eitt mest spilaða lag allra tíma.

8. Jeff Buckley - Last Goodbye
Jeff sjálfur náði aldrei að segja "last goodbye" þar sem hann druknaði í Mississippi fljóti eins og áður segir. Þetta er að mínu mati besta lagið sem hann samdi sjálfur. Einstaklega flottur texti og sungið af ótrúlegum krafti. En það hafa fáir söngvarar náð að gera lög eins mögnuð og öflug með svona frábærum söng. En sá kafli lagsins og sú setning sem er kraftmest er: "Did you say "No this can't happen to me"". Þetta lag fjallar um sambandsslit og hversu erfitt það getur verið að kveðja fólk. En ég get ekki ímyndað mér neinn annan spila þetta lag því það er enginn sem gæti sungið þetta lag jafn vel. Að mínu mati er það aðeins Elvis sjálfur sem toppar Jeff í sönghæfileikum. Þó svo að þetta lag sé kanski frekar eitthvað sem fólk myndi tengja við sorg og erfiða tíma þá er það ekki þannig hjá mér því ég á ótrúlega góðar minningar tengdu þessu lagi. En ég hlustaði alveg svakalega mikið á plötuna Grace þegar ég bjó í Frakklandi. Það þarf ekki alltaf að vera þannig að sorglegt lag verði endilega að minna mann á eitthvað sorglegt. Svona getur þetta verið skrítið maður ;).

9. Neil Young - Heart Of Gold
Já hver er ekki enn að leita að hjarta úr gulli. Ég veit nú ekki hvort að Njáll Ungi eins og sumir kalla hann sé ennþá búinn að finna hjartað úr gulli. En engu að síður þá heldur bara leitin áfram hjá mörgum öðrum. Alveg magnað lag sem fjallar einfaldlega um leitina að rétta aðilanum. En þetta er svo einfalt lag en samt ótrúlega flókið á einhvern hátt. Ég hef sagt það áður að ég elska munnhörpu í lögum. Og þetta lag er ein af ástæðunum afhverju ég ætla mér að læra að spila á munnhörpu. Neil Young er einn af þessum klassísku tónlistarmönnum sem virðast ætla að spila og gefa út plötur endalaust. Núna seinast gaf hann út plötuna "Living With War". En ég ætla að eignast allar plötur kappans einhverntíman, en það á nú eftir að taka smá tíma því þær eru ansi margar og ég á nú bara Harvest ennþá. En platan Harvest er að mati flestra aðdáenda besta platan og ættu þeir sem hafa gaman af honum að fá sér hana.

10. Rolling Stones - Sympathy For The Devil
Besta lagið með snillingunum í Stones að mínu mati. Einstakt lag sem Mick Jagger skrifaði eftir að hann var búinn að lesa bókina Meistarinn og Margaríta eftir Mikhaíl Búlgakov. En þetta fjallar jú um þegar djöfullinn heimsækir Moskvu. Ótrúlega skemmtilegt og fjölbreytt lag þar sem hin ymsu hlóðfæri eru notuð. En ég hef örugglega sagt það áður en Rolling Stones er að mínu mati besta hljómsveit allra tíma. Engin hljómsveit hefur náð að halda sér svona á toppnum jafn lengi og þeir hafa náð að gera. Sennilega aðalega vegna þess að Keith Richards getur ekki dáið og er að breytast í Yoda og verður endalaust gamall. Hann deyr ekki eins og hinar rokkstjörnurnar og þessvegna hafa Stones náð að halda áfram á meðan að flestir samtíma tónlistarmenn þeirra hafa verið að deyja langt fyrir sinn aldur. Já framtíðin getur aðeins sagt okkur hvenær þeir deyja allir á sviði. Því það er alveg öruggt, þeir munu deyja á tónleikum. Endalaust haldið áfram bara! Hehe keep on rockin'


» 19 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 20:47:07 / stefans

Top 100 listinn

11. Damien Rice - The Blowers Daughter
Þetta er uppáhalds lagið mitt með Damien. En þetta er með því fallegra sem maður hefur heyrt. En þetta lag hefur verið notað í mörgum þáttum og í myndinni Closer með Julíu Roberts, en það getur varla verið góð mynd ef hún er í henni... hehe. Kanski er þetta lag bara hápunkturinn í myndinni. Hver veit.. kanski einhver sem hefur séð myndina sem getur sagt mér frá því. Því ég ætla ekki að eyða 2 klukkutímum með Júlíu Roberts... neit takk. En allaveganna þá er þetta stórkostlegt lag og hafa eflaust flestir heyrt það.

12. Ryan Adams - Come Pick Me Up
Ég elska munnhörpur. Og þetta lag er svo sannarlega ein af ástæðunum afhverju ég geri það. Ótrúlega fallegt spil, magnaður texti og söngurinn hjá Ryan klikkar aldrei. Banjóið er líka flott þarna í bakgrunninum án þess að taka of mikið pláss. En þetta lag er á fyrstu plötunni, Heartbreaker. En sú plata er jafnframt ein allra besta plata sem gerð hefur verið og ætti enginn að láta hana framhjá sér fara. Eins og sagt hefur verið áður þá er Ryan uppáhalds tónlistarmaðurinn minn. En ég vona það að ég eigi eftir að sjá hann á tónleikum fljótlega, en hann er núna að tour:a í USA. Hann hefur ekki komið á klakan en ég verð bara að reyna að drífa mig yfir hafið til að sjá hann spila.

13. Bob Dylan - Knockin' On Heaven's Door
Ég veit að þetta er klisja en.. er hægt að hafa svona lista án þess að hafa þetta lag. Nei held ekki. Það eru sjást margir ósammála því að þetta sé besta lagið með Dylan, en það er allaveganna mín skoðun. Ég held að þetta sé líklega það lag sem flestir tónlistar menn og konur hafa coverað. Endalaus röðin af tónlistarmönnum sem hafa tekið það og lagt sína túlkun í það. En útgáfa Guns n' Roses er þá líklega sú sem allir rokkarar muna eftir. Enda var það bara meistaralega gert hjá frekjunni Axl Rose og þáverandi félögum í GNR. En þetta lag varð ekki almennilega frægt fyrr en Eric Clapton tók það og túlkaði frábærlega. "That long black cloud is comin' down, I feel like I'm knockin' on heaven's door." Dæmi um frekar einfalt lag og texta sem er sett saman svona meistaralega.

14. Pink Floyd - Money
Að mínu mati besta lagið með Pink Floyd. Alveg tær snilld! Pink Floyd voru brautriðjendur og með þessu lagi brutu þeir gegn því áður óskrifaða lögmáli að skipta ekki um takt í miðju lagi. En þetta er alveg ótrúlega skemmtilega gert og flottur saxófon leikur í því. Ég fór nú ekki að sjá Roger Waters í Egilshöllinni því ég ætlaði mér að sjá hann frekar á Hróa.. en svo fór nú því miður ekki og ég misti af þessu. En ég held nú samt að það væri lítið varið í það að sjá Waters og ekki neinn David Gilmour til að taka á þessum flottu gítarsólóum. But anyway, another time another day. Held nú því miður samt að líkurnar á því að fá að sjá þá félaga alla saman séu litlar.  

15. Sophie Zelmani - Always You
Sophie who? Spyrja sjást flestir. En ég skal segja ykkur það að ef þið fílið singer/songwriter tónlist þá er Sophie Zelmani bara must! Þessi sænska söngkona er með heilan helling af frábærum lögum og flotta texta. En þetta lag er eitt það fallegasta sem ég hef heyrt. Inniheldur allt sem alvöru singer/songwriter lag á að hafa, fallegur söngur, góður texti, flottur kassagítar og að sjálfsögðu munnhörpu. Það væri líka gaman að sjá hana á sviði. Hef heyrt að það sé alveg töfrandi stemming á tónleikum með henni. En ég mæli eindregið með því að þeir sem ekki hafa heirt hana tékkið á því.

16. Marvin Gaye - Let's Get It On
Seiðandi og kynþokki. Já það er nú sennilega besta lýsingin á því hvernig tónlist hans Marvins er. Þetta lag sem er á samnefndri plötu er alveg ótrúlegt! En platan er líka sannkallað meistara stykki og hefur verið sögð vera ein kynþokka fyllsta plata sem nokkurntíman hefur verið gefin út. Ætli hún sé ekki bara á top 10 listanum hjá mér yfir bestu plötur allra tíma, já en það er svo önnur saga. En hann var myrtur af föður sínum degi áður en hann varð 45 ára. En þeir feðgarnir höfðu farið að rífast þegar þeir voru fullir á heimili sínu og endaði það með því að faðir hans skaut hann til bana. En hann náði svo sannarlega að setja svip sinn á tónlistar söguna og þá helst soul tónlistina. Og rétt eins og margir aðrir svartir söngvarar þá byrjaði hann að syngja í kirkju. En nú á að fara að gera kvikmynd um líf hans eftir að myndirnar um Ray Charles og Johnny Cash hafa fagnað miklum vinsældum. En ég bíð spenntur eftir því að sjá hana.

17. Nirvana - Smells Like Teen Spirit
Nirvana er líklega ein mikilvægasta hljómsveit og áhrifavaldar seinni tíma. Um það er ekki hægt að deila, jaa nema að maður sé fæðingarhálfviti og hafi ekkert berta að gera... En þessi sveit gjörbreytti tónlistinni á þessum tíma og var ferskur vindur sem hafði alveg ótrúleg áhrif  indie/punk/rokk tónlist sem fylgdi í kjölfarið. En önnur plata sveitarinnar Nevermind kom eins og elding úr heiðskýru lofti og markaði tímamót í tónlistarheiminum. Það er eflaust hægt að segja að hún breytti heiminum, ekki bara tónlistarlega séð. En eins og flestir vita þá framdi Kurt Cobain sjálfsmorð en ég man það nákvæmlega hvar ég var staddur þegar ég frétti að hann væri látinn, þrátt fyrir það að hafa ekki einusinni verið orðinn 10 ára gamall. En Nirvana var ein af fyrstu hljómsveitum sem ég virkilega dáði. Og platan Nevermind ein sú fyrsta sem ég eignaðist.

18. Robbie Williams - Angels
Já nú hneykslast evlaust margir. En já þetta lag er einfaldlega bara snilld. Og ég ætla ekkert að hlusta á einhverja töffara stæla og vitleysu um það að þetta lag sé ekki snilld. Því þetta er alveg frábær kveðskapur og ógleymanlegt lag. En það var kosið besta lag síðustu 25 ára af breskum útvarpshlustendum. En Noel Gallagher heldur því fram að Robbie hafi ekki skrifað lagið sjálfur heldur átti lagasmiðurinn Guy Chambers átt að hafa skrifað það. En móðir Robbie segir annarsvegar að hann hafi skrifað lagið um gyllta styttu af engli í heima bæ sínum Burslem. En ég læt það nú vera hvor sagan sé sönn því engu að síður þá er þetta frábært lag og finnst mér að það ætti enginn að vera að reyna að covera þetta lag því það er ekki hægt að gera það betra en Robbie gerir. Og viðbjóðurinn hún Jessica Simpson gerði hræðilega tilraun sem hljómaði eins og að einhver væri að misþyrma úlvalda. Alveg hræðilegt gaul!

19. David Gray - Babylon
David Gray kemur oft fyrir á þessum lista en þetta er besta lagið hans að mínu mati. Þegar ég heiri þetta lag þá fæ ég alveg ótrúlega mikla frelsis tilfinningu, eins og að ég sé fugl sem flýgur yfir fallegt sveita landslag á miklum hraða. En mér finnst alveg magnað að keyra útá landi í góðu veðri með þetta lag í botni. Mér finnst það alveg sérlega skemmtilegt hvernig hann notar rafræna tónlist og hefbundna singer/songwriter saman. En platan sem þetta lag er á er sannkallað meistarastykki og ég fæ aldrei nóg af henni. En ég byrjaði að hlusta á þessa plötu árið 2001 en það var þegar ég var að fara í skíða/bretta ferðalag með bekknum mínum í menntaskóla til Idre fjell í Svíþjóð. Þá var þessi plata í stanslausri spilun á meðan við keyrðum í gegnum frábært vetrar landslag í sænsku fjöllunum.

20. Damien Rice - Cannonball
Damien Rice er einnig í miklu uppáhaldi. En þetta lag er líka mjög eftirminnilegt og það fyrsta sem ég heyrði með meistara Rice. En þetta lag er með einn af flottustu textum sem ég hef heyrt. "Stones taught me to fly, love taught me to lie, life taught me to die, so it's not hard to fall when you float like a cannonball." There you have it, hreint frábær kveðskapur! En ég er verulega spenntur að fá að heyra eitthvað nýtt frá honum en þetta tekur víst tíma hjá honum. Enda er það bara betra að menn vanda sig frekar en að reyna að gefa bara út sem mest og selja eitthvað drasl. En ég mun eflaust vera með þeim fyrstu í röðinni þegar kemur að því að nýja platan er gefin út. Ég er núna kominn með alveg glás af bootleggum með honoum og live efni. 5-6 útgáfur af þessu lagi til dæmis. En ég vona bara að hún fer að koma.


» 9 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 22:08:40 / stefans

Top 100 listinn

21. Jeff Buckley - Lover, You Should Have Come Over
Afhverju þurfa allir snillingar að deyja ungir? Ég skil þetta bara ekki, það er bara eins og að snilligáfur þeirra eru of góðar fyrir þennan heim. Jeff Buckley líkt og faðir hans Tim Buckley dóu ungir. En Tim lést aðeins 28 ára gamall eftir að hafa tekið of stóran skamt af heroíni. Jeff dó á svipuðum tíma í lífinu en hann varð aðeins 30 ár. Það var þó ekki vegna eiturlyfja eins og hjá mörgum öðrum. En áfengi átti stóran þátt í því hvernig fór fyrir honum því hann ákvað að fá sér smá sundsprett í Mississippi fljóti þegar hann var á fylleríi með vinum sínum og hvarf. En það var ekki fyrr en 6 dögum seinna sem lík hans fannst. Þetta lag er að finna á plötunni Grace sem er sú besta og frægasta með honum. Þetta lag er alveg svakalega fallegt og fjallar um hvernig fólk hættir saman vegna þess að það er ekki tilbúið til að skuldbinda sig því það vill lifa lífinu. En uppgötvar það svo þegar það hættir saman að það var ekki al slæmt og það er tilbúið til að gera hvað sem er til að laga sambandið.

22. Oasis - The Masterplan
Já gott fólk, næst síðasta Oasis lagið á listanum. Þið vitið sjást hvaða lag það er sem kemur seinna. En það hafa sjást fæstir heyrt þetta lag því þetta er á plötunni Masterplan sem er að mínu mati besta plata þeirra. En hún er samansafn af B-hliðum sveitarinnar. Þetta er svo ótrúlega góður texti og lagið kemur mér alltaf í gott skap! En þetta fjallar um lífið allmennt og um það að grípa tækifærin þegar þau gefast. Gott mottó! Maður á ekki að sjá eftir hlutum sem maður hefur gert heldur á maður að passa það að hafa ekki hluti sem maður sér eftir að hafa ekki gert (smá furðuleg speki). En mér finnst að maður á bara að gera það sem manni langar til, efa manni langar eitthvað nógu mikið þá getur maður gert það! Impossible is nothing (Adidas..hehe). Já en nóg um það ég er ætla ekki að vera með eitthvað heimspeki horn hérna. Tékkið á plötunni! Masterplan er ekta Oasis hrátt eins og þeir eiga að vera.. mæli einnig með laginu Fade Away sem er á henni.

23. Led Zeppelin - Whole Lotta Love
Þetta lag er einfaldlega bara fjör! Hvar væri heimurinn í dag ef Led Zeppelin hefði aldrei verið til? Ekki veit ég, en allaveganna ekkert sérstaklega skemmtilegur. Tvímælalaust einn af mestu áhrifavöldum rokk sögunar! Ef rokkið væri brauð þá held ég að þeir væru hveitið. Allir sem vilja telja sig til manna verða allavegana að eiga Remasters með Zeppelin. En það má til gamans geta að sveitin hefur tekið þá stefnu að leyfa ekki tónlist sína í kvikmyndum. En þegar Jack Black gerði myndina School of Rock þá grátbað hann sveitina um að fá að hafa Immigrant Song, en það tókst honum með því að fá heila tónleika höll af fólki til að biðja þá um að leyfa lagið í myndinni. En hann sagði að það væri ekki hægt að gera mynd um rokk tónlist án þess að hafa Zeppelin.

24. Nick Drake - Saturday Sun
Þetta er uppáhalds lagið mitt og jafnframt síðasta lagið á listanum með snillingnum Nick Drake. Eins og áður segir þá varð hann ekkert svaka frægur fyrr en eftir að hann var dáinn. En tónlist hans hefur snert rosalega marga og orðin að innblástri fyrir ótal singer/songwriters á meðal annars Jeff Buckley og hinni sænsku Sophie Zelmani. En Q-magazine líkti Emilíönu Torrini við hann og sagði að hún væri kven útgáfa af honum. Þetta lag er eitthvað svo ljúft, mikil vellíða sem fylgir því. En fyrir þá sem hafa áhuga á að hlusta á það þá er það síðasta lagið á plötunni Five Leaves Left. Mæli með þessu fyrir alla sem fíla Emilíönu.

25. Coldplay - Warning Sign
Besta lagið með Coldplay? Yes definitely! Alveg hreint út sagt magnað lag! Tekstinn er alveg frábær og er snilldar kveðskapur einn og sér. Svo kemur þetta lag og fullkomnar verkið. "A warning sign, you came back to haunt me and realized, that you were an island and I passed you by, that you were an island to discover". Píanó leikurinn í lok lagsins er líka glæsilegur. En eins og ég hef áður sagt þá er ég kominn með algjört ógeð af Coldplay og þakka þeim bara fyrir að fara í 2-3 ára frí. Good career move! Verð ég nú bara að segja.

26. The Verve - The Drugs Don't Work
Þetta lag er nú bara stórkostlegt. En lagið er ekki skrifað um dópneyslu eins og margir eflaust halda. En sagan segir að Richard Ashcroft hafi skrifað lagið þegar móðir hans var að fara í gegnum lyfjameðferð vegna krabbameins. En hann skrifaði það vegna þess hversu hjálparlaus hann var þegar hann gat ekkert gert í því til að hjálpa henni þegar hún þjáðist. Þar af skilur maður betur setninguna: "Like a cat in a bag, waiting to drown".  Ótrúlega vel skrifað lag sem ég tel vera besta lagið með The Verve. " Cause baby, ooh, if heaven calls, I'm comming too, just like you said, you leave my life, I'm better off dead".

27. Queen - Bohemian Rhapsody
Uppáhalds lagið mitt með Queen og eina lag þeirra á listanum já. Ég hlustaði mikið á Queen þegar ég var yngri og þetta lag hefur alltaf verið í uppáhaldi. En þetta lag er sérlega skemmtilegt og inniheldur allt, ballað, kórsöng og brjálað rokk. Þar sem ég var ekki fæddur þegar þetta lag kom út þá uppgötvaði ég það ekki fyrr en ég sá myndina Waynes World. En það muna sjást flestir eftir þeirri snilldar mynd. Atriðið þar sem þetta lag er í undirspili er eitt af mínum uppáhalds atriðum. Brjálað fjör! Party on Wayne!... Party on Garth!

28. Rolling Stones - Paint It Black
Þeir kunna þetta þessir karlar! Engin hlómsveit hefur náð að halda vinsældum svona miklum í svona marga áratugi eins og þeir eru búnir að gera. Og þeir breyttu ekki um stíl heldur héldu bara áfram sinni keyrslu. En aðvitað eru þeir búnir að þróast og aðlagast breyttum tímum, en þeir hafa gert það án þess að gleyma hverjir þeir eru og halda fast í það sem gerir þá einstaka. Þetta lag kemur ansi oft fyrir í stríðs myndum eins og t.d. Full Metal Jacket ofl. En lagið er sagt fjalla um jarðarför eða sambandsslit. En sumir vilja meina að þetta sé kynþáttar árás. En ég myndi nú frekar veðja á fyrsta valkostinn. En allaveganna frábært lag sem er jafnframt næst síðasta lagið með Stones á listanum.

29. Damien Rice - Amie
"Nothing unusual, nothing strange, close to nothing at all". Já svona byrjar þetta frábæra lag. Damien Rice er alveg ótrúlega flínkur í því að búa til ljúfa texta sem fljóta vel í gegn með fallegu spili, fiðlur, kassagítar og loks bassi sem læðist að þessu öllusaman. Það eru heldur ekki margir með svona ótrúlega rödd eins og hann er með. Hann gæti auðveldlega orðið Idol stjarna með þessari mögnuðu söngrödd sinni en sem betur fer fyrir okkur þá ákvað hann að gera alvöru músík.  

30. Radiohead - Creep
Það er orðið langt síðan að Radiohead var með lag hérna en þetta er jafnframt næst síðasta lag þeirra á listanum og það er einnig mjög langt í síðasta lag þeirra. Frábært lag sem allir trúbadorar kunna og kemur yfirleytt stemmingunni í gang. En það er sagt að Thom Yorke skrifaði þetta lag um það hvernig það var þegar hann var lítill og öðruvísi en allir hinir, erfiði við að ná sér í stelpur og hvernig það var að aldrei vera eins og hinir krakkarnir. Smá "therapy" fyrir hann kanski að skrifa þetta lag.


» 14 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 22:14:47 / stefans

Top 100 listinn

31. Elvis Presley - In The Ghetto
Enginn listi án Elvis! Já hér er það mætt, seinna lagið hans á listanum. En þetta er uppáhalds lagið mitt með kappanum. Enginn hefur náð að æsa kvenþjóðina eins mikið upp og hann Elvis gerði með því einu að hreyfa á sér mjaðmirnar. Það er óhætt að segja að hann hafi haft rosaleg áhrif á heila kynslóð með tónlist sinni. En á þeim tíma sem stutt pils voru verfæri djöfulsins og ungum stúlkum var kennt að þær gátu orðið ófrískar ef að þær voru að kyssa stráka þá kom Elvis niður eins og elding úr heiðskýrum himni og gerði allt brjálað.

32. Oasis - Supersonic
Ó já Oasis heldur áfram! Snilldar lag! Sumir hafa kvartað yfir því að það eru Oasis lög hérna, en ég ætla bara að láta ykkur vita að það eru 2 í viðbót á leiðinni. Þið getið eflaust giskað eitt þeirra en hitt hafa sjást fæstir heyrt. En allaveganna þá er þetta lag mega stuð lag! Flottur kraftur og trommuleikurinn er sérlega skemmtilegur og mikið rokk í laginu í heild sinni. Hver kemst ekki í fílínginn við það að heyra " I'm feeling supersonic, give me gin and tonic". Já þetta er sannkölluð snilld en að lokum þá verð ég nú að heiðra hana Elsu vinkonu mína með þessu "I know a girl called Elsa. She's into Alka Seltzer. She sniffs it through a cane on a supersonic train. She made me laug. I got her autograph." Já kanski var hann Noel bara að semja þetta um þig Elsa mín... hver veit.. hver veit...

33. The Verve - Bitter Sweet Symphony
Stórsveitn Verve er hér enn og aftur með yndislegt lag. Þetta er lagið sem varð til þess að þeir slóu í gegn. Enda ekki skrítið kanski þetta er alveg stórkostlegt lag og það varð "instant classic" eins og bretarnir orða það. En það er skemmtileg saga á bakvið þetta lag. Það vill svo til að það er unnið úr gömlu lagi eftir Rolling Stones sem heitir The Last Time. En þáverandi umboðsmaður Stones hafði tekið nokkur lög sveitarinnar og gert sinfoníu útgáfur af þeim. En Verve tóku lagið upp án þess að fá leyfi hjá Stones, en þess vegna urðu þeir að afsala sér nánast öllum "royalties" til Stones til að geta gefið lagið út. En maður eða kanski réttara sagt mínkur að nafni Allen Klein fær því nánast allar tekjur sem lagið skilar því hann gerði á sínum tíma samning við Stones um réttindi að öllum lögum fram að 1969. Ansi áhugaverð saga á bakvið það sem sagt.

34. Rolling Stones - Gimme Shelter
Þetta lag hefur verið kosið besta Stones lagið í mörgum tímaritum eins og Q Magazine, Uncut og Mojo svo eitthvað sé nefnt. En ég er ekki alveg sammála. Það eru tvö lög sem eru betri að mínu mati. En þetta lag fjallar eins og margir eflaust vita um þá hræðilegu atburði sem áttu sér stað á tónleikum Stones í Altamont árið 1969. En þeir héldu tónleika þar sem voru ókeypis og sá Hells Angels um gæsluna upp við sviðið. En þeir héldu þessa tónleika á hraðbraut sem þeir hefðu fengið lokað eina helgi til að halda tónleikana. En troðningurinn var strax all svakalegur og ljóst varð mjög snemma að þetta myndi enda með einhverjum ósköpum. Svo brutust út slagsmál sem enduðu með því að 850 manns slösuðust alvarlega og nokkrir létu lífið. Þar á meðal var einn maður skotinn til bana á meðan að hljómsveitin spilaði lagið Sympaty For The Devil. Það var ljóst að þetta var mikið áfall og hræðileg lífsreynsla en svetin spilaði heldur ekki lagið í 6 ár eftir það. En söngvari Jefferson Airplane, Marty Balin var rotaður í átökunum. Já þetta lag er semsagt samið um þessi ósköp. Frábært lag þó svo að sagan um tilurð þess sé afar hræðileg.

35. Damien Rice - Volcano
Já þetta er fyrsta lagið sem snillingurinn Damien Rice á hér á þessum lista. En þetta er ekki það síðasta. En hann án efa einn sá allra besti singer/songwriterinn í bransanum í dag. Það heillast kanski ekki allir þegar þeir heyra hann í fyrsta skipti en ég get fullyrt það að það fer enginn ósnortinn út af tónleikum með kappanum! En ég var einmitt á seinni tónleikum hans á NASA. En þetta eru án efa bestu tónleikar sem ég hef farið á. Og þó hef ég nú farið á ansi marga tónleika. Það á ekki að vera hægt að skapa svona stemmingu eins og hann gerði í salnum. Einn maður með kassagítar og söngkonu á bara ekki að geta gert þetta. En þetta gat hann enda var andrúmsloftið svo magnað að það var nánast hægt að snerta það, jafnvel skera það með hníf. En ég er alltaf að bíða eftir því að hann gefi frá sér aðra breiðskífu. En það er nú orðið ansi langt síðan að plata hans The O kom út árið 2003. En ég keypti mér plötuna skömmu eftir að hún kom út og var það góð vinkona mín sem benti mér á hana. Þessi plata er svo sú plata sem ég hef spilað allra mest held ég en hún var nánast í tækinu í heilt ár en aldrei varð ég leiður á henni. En núna hlusta ég sjaldnar á hana og ég er farinn að bíða eftir nýju meistaraverki frá honum.

36. Bob Dylan - I Want You
Nei enginn listi án Bob Dylan! Enda væri það eins og að ætla að fara að baka brauð án þess að vera með hveiti. En þetta lag finnst mér vera alveg sérlega skemmtilegt. En það er að mínu mati næst besta lag hans. Það lag sem skilar sér hérna ofar er jafnframt frægasta lagið held ég. En það eru alltaf jafn skemmtilegir textar hjá honum en það eru ekki margir sem jafnast á við hann því kveðskapurinn hans er alveg rosalegur. Ég hef einmitt verið að lesa bókina Chronicles Volume One eftir hann sjálfan en þar segir hann sjálfur frá lífi sínu á skemmtilegan hátt.

37. Pink Floyd - Shine On You Crazy Diamond, Pts 1-5
Vá þetta lag er alveg ótrúlegt! Þetta er einnig lengsta lagið á þessum lista en þetta lag er heilar 13 mín og 34 sek. En þetta er enganvegin langdregið og leiðinlegt lag heldur stórkostlegt verk sem inniheldur margbreitilegar sveiflur. Það er mjög rólegt og ljúft til að byrja með en magnast svo upp og fer út í mikinn æsing og flottan gítarleik. Þetta er svona eins og að bíða eftir jólunum að hlusta á þetta. Það byggir upp spenning í gegnum allt lagið og magnast svo upp í lokin og verður að stórkostlegri hátíð.

38. Rolling Stones - Angie
Já það eru ansi mörg lög hérna með Stones. En ekki skrýtið þar sem þetta er klárlega besta rokkhljómsveit allra tíma! En hér er eitt af fallegri lögum sveitarinnar. Mjög rólegt og ljúft lag en það hefur verið haldið því fram að lagið hafi verið samið um eiginkonu David Bowie. En það er víst ekki svo því það var hann Keith Richards sem samdi lagið og hann þekkti ekki David Bowie sérstaklega vel heldur var það aðalega Mick sem þekkti hann. En Keith á að hafa samið lagið til dóttur sinnar undir dulnefninu Angie. Hvernig sem það nú er þá er þetta lag engu að síður alveg ótrúlega fallegt og ljúft lag.

39. John Lennon - Instant Karma!
Þetta er eitt af frægari lögum kappans. En frægasta lagið kemur mun seinna. Þetta er samt lag sem kemur manni alltaf í gott skap. "Well we all shine on like the moon and the stars and the sun." Já hvað getur maður sagt maðurinn kunni sko að semja skemmtilega texta og lög. En ég á nú reyndar bara einn disk með honum, diskinn Wonsaponatime.

40. Nick Drake - Things Behind The Sun
Já hann Nick Drake er tíður gestur hérna. Enda samdi maðurinn svo mörg frábær lög á stuttu æfi sinni að annað er ekki hægt. En þetta lag er næst eftsta lag hans á listanum. Alltaf er gítarleikur hans jafn skemmtilegur og rödd hans einstaklega ljúf. En þetta lag er að finna á plötunni Pink Moon sem mér finnst persónlega vera besta platan hans þó svo að gagnrynendur oftast telja annaðhvort Bryter Layter eða Five Leaves Left vera besta.


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 20:17:20 / stefans

Top 100 listinn

41. Oasis - Champagne Supernova
The greatest fuckin band in the world continues! Já þetta lag fíla jafnvel þeir sem hata Oasis. En þetta er sérlega vel skrifað og skemmtilegt lag. Frábært moment í sögu sjónvarpsins þegar Liam Gallagher var í þættinum TRL á MTV. Þulurinn spurði Liam: "What do you think of all the boybands out there?" Liam svarar: "Good looking buggers". Þulurinn: "There are so many of them out there you know selling records making millions". Liam: "Ey ey ey it's not about selling records... It's about being real!" Sannara hefur það ekki verið sagt! Þvílík snilld!

42. Bob Dylan - Blowin' In The Wind
"How many roads must a man walk down, before you call him a man?" sagði skáldið... já Bob þetta er góð spurning. Betri texta smiður verður ekki fundinn í bráð. Bob Dylan er hérna með enn einn smellinn. Hann er orðinn fastur liður á þessum magnaða lista. Þetta lag er mjög skemmtileg pæling. Fólk leitar alltaf að svari við stóru spurningum lífsins. Hann svarar þessu bara mjög vel, "The answer my friend is blowin' in the wind". Það er ekkert alltaf eitthvað sjálfsagt svar við hlutunum.

43. David Gray - Sail Away
Já David Gray er líka fastur liður hérna. Enda hefur hann verið kallaður Bob Dylan nútímans. En persónulega þá er ég bara ekkert hrifin af þessu endalausa þrasi og líkingum við það sem áður hefur verið. Hinn nýji hitt og þetta. Hinn nyji Maradona æpa trylltir argentínumenn um leið og einhver stráklingur getur eitthvað í fótbolta. Nei David Gray er bara David Gray að mínu mati. En engu að síður mikill snillingur sem semur texta og lög sem snerta mann. Þetta lag er á plötunni White Ladder sem inniheldur hvert meistarastykkið á fætur öðru. Enda nokkur lög af þeirri plötu hér á listanum.

44. Johnny Cash - One (U2 Cover)
Ég veit að það er ljótt að setja cover lög á svona lista! En annað er bara ekki hægt í þessu tilviki. Johnny tekur hér lagið One eftir U2 og gerir það sitt eigið. Hann lyftir því og tekur það skrefi ofar. Maður trúir honum miklu frekar þegar hann syngur þetta lag. Hann er virkilega að meina þetta. Mér finnst ekki að Bono taki lagið nógu alvarlega þegar hann syngur það. En strákarnir í U2 eiga þó heiður skilið fyrir að skrifa svona fallegt lag. Cash fer einfaldlega betur með það þó.  

45. The Verve  - Lucky Man
Fyrsta lagið sem strákarnir í The Verve koma til sögu með. En platan Urban Hymns er bara einfaldlega ein sú besta sem gerð hefur verið. Það er svo mikil sorgar saga hvernig fór svo fyrir þessari mögnuðu hljómsveit. Það voru allir útúr dópaðir og eins og gerist hjá mörgum sem verða svaka frægir of fjótt þá fór allt í háloft og menn fóru að kæra hvorn annan hægri og vinstri. En þeir voru nú reyndar farnir að rífast löngu áður en þeir slóu í gegn þannig að ekki var það betra þegar háar peninga uppæðir voru með í spilinu. Söngvari sveitarinnar Richard Ashcroft hefur þó gefið út 3 sóló plötur sem eru mjög góðar en ná þó aldrei að meta sig við hina miklu snilld sem var til staðar þegar allir meðlimir Verve tóku sig saman.

46. Eric Clapton - Tears In Heaven
Er til eitthvað meira heartbreaking lag? Nei hélt ekki. En þetta lag samdi Clapton eftir að fögura ára sonur hans lést eftir að hafa fallið út um glugga á 53 hæð háhysis í New York. Það er varla hægt að ímynda sér neitt verra en að verða fyrir því að missa barn og þetta lag samndi hann til að vinna úr sorg sinni. Þetta er og verður eitt fallegasta lag alltra tíma án efa!

47. Rolling Stones - Start Me Up
Fjör boltarnir í Rolling Stones kunna þetta. Eilífu unglíngarnir eru hér með eitt mesta stuð lag allra tíma. Hvar væri heimurinn í dag ef Stones hefðu ekki verið til. Hver veit? Ekki langar mig til að vita það. Við værum kanski öll að hlusta á Björgvin Halldórsson eða einhvern annan öfug ugga viðbjóð. Nei þeir eru einfaldlega svo stór partu af rokk sögunni að það væir ekki hægt að missa þá.

48. Nick Drake - Pink Moon
Nick er hér mættur aftur. Pink Moon er á samnefndri plötu sem kom út árið 1972. Þessi silki ljúfa rödd skilar frá sér stórkostlegan kveðskap á færibandi. En eins og oft áður þá varð hann ekkert þekktur fyrr en eftir að hann dó. Það vill oft til að menn sem eru með slíkar snilligáfur verða oft misskildir og því er það ekki fyrr en löngu síðar sem fólk virkilega skilur hversu hæfileikaríkt það var. En þessi enski snillingur fæddist í Burma, hann bjó ekki lengi þar en fluttist svo ásamt foreldrum sínum aftur til Englands þar sem hann eyddi stuttu æfi sinni en hann lést árið 1974.

49. The Beatles - Let It Be
Það er ekki hægt að hafa top lista án þess að hafa bítlana. Óóóh nei! Klassískt lag frá þeim. Man eftir því að við sungum þetta marg oft í tónmennt í skólanum. Enda eitt af fallegri lögum allra tíma. En það er samt ekkert stappað af Beatles lögum inná þessum lista. Enda eru þeir pínu ofmetnir að mínu mati. Þeir voru réttir náungar á réttum stað á réttum tíma. Ekki þætti mönnum þeir nú merkilegir í dag ef þeir væru að koma fram í sviðsljósið. En það má samt ekki gleyma því að þessi hljómsveit skrifaði stórann kafla í rokksögunni. Ég er nú samt sem áður mikill Lennon aðdáandi enda með 2m plaggat af kappanum í herberginu.


50. Tracy Chapman - Fast Car
Þvílík rödd í manneskjunni. Ein af þessu sérstaklega hæfileikaríku singer/songwriter söngfuglum. Það var í háskóla sem hún byrjaði að taka upp lög og tók upp fyrstu demóin sín í hljóðveri skóla útvarpsins. Hún skrifaði beytta samfélagsgagnrynandi pólitíska textar sem fljótt urðu vinsælir á meðal hásklafólks víða í Bandaríkjunum. En tónlist hennar var í hópi sem varð að brautriðjanda sinnar tegundar ásamt böndum á borð við 10,000 Maniacs og R.E.M.


» 14 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 18:54:01 / stefans

Top 100 listinn

51. Guns N' Roses - Paradise City
Enn einn smellurinn frá strákunum í GNR. Þetta er rokk lag eins og þau gerast best. En það væri gaman ef það væri hin gamla góða sveit sem mætir á Hróaskeldu. En svo er ekki það verður Axl Rose einn á sviði með gínur. Eða eitthvað í þá áttina. Því maðurinn hefur svo svakalega gaman af því að reka fólk. Guns N' Roses er auglóslega ekki Guns N' Roses lengur. Og Velvet Revolver verður aldrei Guns N' Roses. En ég vona samt að honum Axl takist að taka mig með til Paradise City í sumar! Ooohh yeah!!!

52. Oasis - Live Forever
Talandi um egó sem hafa gaman af því að reka hina úr bandinu. En þeir Gallagher bræður eru líka búnir að reka hina. En það er alveg hægt í bandi sem Oasis því að Liam og Noel eru Oasis það skiptir litlu máli hvaða gaurar spila með þeim. Þeir voru aldrei með Slash á gítarnum þannig að það kemur bara maður í manns stað. En það má til gamans geta að þetta er eitt af vinsælustu karaoke lögum allra tíma samkvæmt Q-Magazine.

53. David Gray - This Years Love
David er hér mættur til leiks með annað lag sitt á þessum lista. En það er hægt að finna á plötunni White Ladder. En sú plata er einmitt ein sú magnaðasta sem gefin hefur verið út! Án efa! Æðislegt lag og texti sungið af miklum snillingi! Ég á bara góðar minningar frá þeim tíma sem þessi diskur var sem mest í spilun hjá mér.

54. Travis - The Humpty Dumpty Love Song
The Humpty what??? Hugsa eflaust margir. Já ekki skrýtið kanski. En þetta lag er síðasta lagið á The Invisible Band. Þetta lag uppgötvaði ég eins og mörg eftir að ég hafði hlustað á það nokkrum sinnum. En textinn er alveg hreint ótrúlega góður. En lagið byrjar svona: "All of the king's horses and all of the king's men couldn't pull my heart back together again". Þvílikur kveðskapur. Já en þetta er reyndar eina lagið með Travis á þessum lista þó svo að þeir hafa nú gert mörg góð lög.

55. Bob Dylan - Hurricane
Þarf ég að kynna þetta lag eitthvað frekar? Nei hélt ekki. Þetta er bara snilld! Það er gaman að lesa textan við þetta lag því það er hægt að lesa þetta bara svona eins og sögu sem er alveg í góðu samhengi. Enda er það nákvæmlega það sem meistari Bob er svona góður í að gera. Segja sögur! Dylan barðist fyrir því að koma Ruben Carter úr fangelsi. En flestir hafa sjást séð myndina þannig að ég ætla ekkert að vera að tauta um þetta. Ef þið eru ekki búin að sjá myndina Hurricane þá mæli ég með þvi að þið stökkið út á leigu strax og náið í hana, enda frábær mynd.

56. Ryan Adams - Damn Sam (I Love A Woman That Rains)
Já Ryan er orðinn fastur liður hérna. Enda er maðurinn bara snillingur og ekkert annað. Þó svo að hún Elsa sé ekki sammála haha. Enda er hún kvenmaður og kvenfólk hefur ekkert vit á tónlist frekar en kindur það er vitað mál (haha núna eru sjást einhver femenista samtökin búin að biðja um lögbann á blogg síðuna mína haha, verð að flytja yfir á bandarískan server til að komast hjá þvi haha) Jæja nóg um það Ryan er snillingur PUNKTUR.

57. Metallica - One
Vá ég fæ alveg gæsahúð þegar ég hugsa um Metallica tónleikana í Egilshöll. Þetta var alveg magnaður viðburður. En þetta er eina lag þeirra á listanum enda klárlega lang besta lag þeirra! Það býður upp á eitt skemmtilegasta gítarsóló sem heyrst hefur. Myndbandið við þetta lag er líka frábært. Should be played loud!

58. Pink Floyd - Wish You Were Here
Hvaða tónlista maður hefur ekki coverað þetta lag spyr ég bara. Já þetta er eitt af þessum lögum sem allir taka einhverntíman. Enda er þetta magnað lag! Mér finnst alltaf orginalið best en sá sem hefur túlkað þetta manna best er believe it or not, fíflið hann Fred Durst. Já hann kom verulega á óvart þegar hann spilaði þetta eftir 9/11. En það liggur enginn vafi á því að Pink Floyd sé eitt af áhrifaríkustu hljómsveitum allra tíma.

59. Coldplay - Green Eyes
Ég var kominn með algjört ógeð af þessari hljómsveit snemma árs í fyrra. Ekki misskilja mig þetta er ein af þeim hlómsveitum sem ég fíla allra mest. En þeir voru bara allstaðar! Öllum bíómyndum, auglýsingum, sjónvarpsþáttum, tónlistarverðlaunum, blöðum og stanslaust í útvarpinu. Ég var kominn með ógeð áður en nýji diskurinn X&Y kom út en ég keypti engu að síður. Það er ekki hægt að deila um snilligáfu sveitarinnar. En þetta varð bara of mikið. Þeir virðast ætla að taka sér frí í einhvern tíma núna og það er einmitt það sem þeir eiga að gera. En lagið Green Eyes er eitt af þeirra perlum.

60. Ray Charles - Mess Around
Ef þetta lag er ekki stuð þá veit ég ekki hvað. Þetta er besta lag Ray án efa. Enda fjörugt og skemmtilegt. En hann gerði mörg góð lög í gegnum æfina. En myndin um snillingin náði svaka vinsældum og það var verðskuldað enda var leikur Jamie Foxx alveg einstakur. En ég fór einmitt að pæla meira í tónlistinni hans eftir að ég var búinn að sjá myndina. Maður var búinn að heyra eitt og eitt lag eins og Virginia On My Mind og Hit The Road Jack en ekkert verið að pæla neitt meira í því. En lagið Mess Around kemur einmitt skemmtilega inn í myndinni Planes, Trains and Automobiles.


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 13:37:55 / stefans

Top 100 listinn

61. David Bowie - Space Oddity
Ekki veit ég hvað meistari Bowie var að hugsa þegar hann samdi þetta lag. Kanski var hann bara einmann og fanst hann vera geimfari. En engu að síður þá er þetta alveg æðislegt lag. Það vill svo til að ég var svo heppinn að ég hitti meistarann í Gautaborg árið 2003. Ég beið í röð fyrir utan plötubúð í 6 tíma (skrópaði meira að segja 3 tíma) til að fá að heilsa snillingnum og fá plötuna Heathen áritaða, já ég veit ég er nörd og á mér ekkert líf. En það var samt magnað að hitta hann en þeir sem pæla ekkert í tónlist skilja ekki hvernig maður nennir þessu. Ég ætla bara að leyfa þeim að hneykslast í friði.

62. Jimi Hendrix - Hey Joe
Ætli Joe hafi verið félagi hans Jimi? Hver veit. "Hey Joe, I said where ya goin' with that gun in your hand? I'm goin' down to shoot my old lady now.
You know I caught her messin' 'round with another man." Er þetta kanski hin eina og sanna Foxy Lady sem hann er að fara að skjóta niður eftir framhjáhald...

63. Bright Eyes - We Are Nowhere And It's Now
Snillingurinn Conor Oberst vakti fyrst athygli aðeins 14 ára gamall. Þessi ungi singer songwriter er í dag orðinn 26 ára gamall og hefur margt gerst síðan þá. Hann hefur náð að gefa út heilar 6 plötur undir nafninu Bright Eyes en sú seinasta er alveg frábær. En hún heitir I'm Wide Awake It's Morning, en þetta lag er einmitt að finna á henni. Ég mæli með því að þeir sem hafa áhuga á góðri singer/songwriter tónlist kynni sér hann nánar því það er ekki neinn venjulegur snillingur hér á ferð.

64. Bob Dylan - Mr. Tambourine Man
Já það ættu allir að þekkja þetta lag. Skemmtilegt lag enda eru textar hans Bob alltaf sérlega skemmtilegir og vel smíðaðir! Það verður væntanlega stemming að sjá Dylan á Roskilde festival. Hef nú reyndar séð hann áður, en það var í Skandinavium í Gautaborginni. Það var nú samt ekkert svaka stuð. Ég varð hálfpartinn fyrir vonbrygðum en það tók stemminguna algjörlega að vera svona langt frá sviði eins og við félagar vorum.

65. Van Morrison - Brown Eyed Girl
Já enn eitt sígilt lag. En þetta er eina lagið með Van the Man sem komst á listann. En hið stórskemmtilega lag Jackie Wilson Said datt út á síðustu stundu. Það kunna allir ungir sem aldnir textan við þetta stórskemmtilega lag. Enda vinsælt lag þegar kassagítarinn er tekinn fram í partý eða útilegum einhverstaðar í móanum. Shalalalalala la di da.....

66. Johnny Cash - Hurt
Já þegar maður heyrir þetta lag þá sannfærist maður um það að Johnny hafi virkilega skorið sig til blóðs til að geta sungið þetta lag því maður finnur virkilega sársauka hans í þessu lagi. Enginn maður hefur náð að sannfæra mann eins mikið um það og hann Johnny gerði. En eins og flestir hafa eflaust tekið eftir þá hefur Cash æði farið um allan heim og allir allt í einu orðinir svaka Cash aðdáendur. Sem mér finnst persónulega bara fyndið. Fólk úr öllum áttum að halda því fram að það hafi hlustað á Cash í ára raðir. Hehehe. Jæja en ég verð nú bara að viðurkenna það að ég á ekki nema best of diskinn og byrjaði ekki að hlusta á hann fyrr en ég heyrði þetta lag í útvarpinu fyrir 2 árum. Enda var það svo grípandi að maður varð hlusta meira á þennan snilling.

67. Elvis Presley - Can't Help Falling In Love
Elvis is alive! Já en bara í gegnum alla ógleymanlega tónlist sem hann skildi eftir sig. Þeir sem halda öðru fram eru fávitar. En þetta er eitt af 2 lögum eftir "The King" sem komust inná listann mikla. En hitt lagið skilar sér inn mun seinna. Ég vill meina að það sé ekki ein söngrödd í heiminum fyrr og síðar sem kemst nálægt snilldar rödd Elvis.

68. Pink Floyd - Another Brick In the Wall (Part II)
"We don’t need no education, we don’t need no thought control." Já þetta sagði ég við kennarann minn í sögu. En þetta á sérstaklega við kenningar Darwins. Þær eru alltaf kenndar í öllum vestrænum samfélögum. En það eru aðeins 10% jarðarbúa sem trúa á darwinisman. Það finnst mér frekar skrítið. En ég er ekki að segja það að ég sé eitthvað á móti kenningum Darwins en mér finnst að það ætti að kenna hugmyndir annara líka þar sem að svona fáir trúa þessu. En þetta lag fjallar einmitt um þetta. Við erum forrituð í skólanum til að hafa ákveðnar skoðanir og trúa öllu sem sagt er gagnrýnislaust. "All in all you’re just another brick in the wall."

69. Ryan Adams - La Cienga Just Smiled
Ef ég hugsa: fallegt lag, þá dettur mér fyrst í hug nafnið Ryan Adams. Því ég veit ekki hvar þetta endar hjá honum. Hann er búinn að gera svo mörg falleg lög að það er alveg með ólíkindum. Hann virðist aldrei ætla hætta að spýta út úr sér frábærar plötur á færibandi. Þetta lag er að finna á plötunni Gold. En meira um meistara Ryan seinna.

70. Radiohead - Exit Music For A Film
Margir hugsa kanski: Hvaða lag er þetta? En þetta lag er á hinni mögnuðu plötu O.K. Computer. En það sennilega ekki margir tekið eftir þessu lagi. En ég gerði það ekki fyrr en ég var búinn að eiga þennan disk í mörg ár. Maður þarf að spila lagið svakalega hátt til að skilja það hversu mikil snilld það er! Þetta lag er alveg stór magnað þegar maður uppgötvar það!


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 00:45:19 / stefans

Top 100 listinn

Nr.

71. Marilyn Manson - Coma White
Þessi umdeildi snillingur er hér með frábært lag. Eins og oft áður þá syngur hann um dópið. Þetta er lag sem fólk ætti að fíla þó svo að það fíli ekki Manson sem persónu. Rólegt lag sem inniheldur frábæri melódíu og góðan texta. Myndbandið við þetta lag er líka alveg frábært.

72. Guns 'N Roses - November Rain
Eitt besta rokk "ballad" allra tíma! Þetta lag sem flestir fíla með GNR. Enda voru vinsældir lagsins alveg hreynt ótrúlegar á sínum tíma. Myndbandið var eitt það mest spilaða á MTV (á þeim tíma sem hægt var að horfa á stöðina) enda er myndbandið sérlega flott og alveg ótrúlega vel gert. En hægt er að finna það á plötunni Use Your Illusion I.

73. Nick Drake - One Of These Things First
Ég uppgötvaði snillinginn Nick Drake í gegnum Svenna frænda. Ég varð strax svo heillaður að ég fór beint og keypti þær 3 plötur sem hann náði að gefa út á meðan hann var á lífi. Gefnar hafa verið út plötur eftir það. En eins og flestir snillingar þá dó hann ungur. Hann átti við geðræn vandamál að stríða. En talið var að hann hafi framið sjálfsmorð með því að taka of stóran skammt af geðlýfjum. Hann lést á heimili foreldra sinna aðeins 26 ára. Ættingjar hans neita þó að trúa því að svo hafi verið en andlát hans var mjög dulafullt.

74. Nirvana - Come As You Are
Þarf þetta lag einhverja frekari kynningu. Þetta lag á hvert mannsbarn að þekkja. Platan Nevermind (sem þetta lag er á) er ein söluhæsta rokkplata sögunnar og engin plata síðustu ára hefur haft eins mikil áhrif á eina kynslóð og hún hafði á sínum tíma, bæði tónlistalega og sköpun lífstíls. Þegar hún sló í gegn þá áttu allir að vera "punk".

75. Aretha Franklin - Respect
Þvílík rödd, þvílík kona. Ekki sé ég það fyrir mér að Idolið eigi eftir að skila frá sér neinni svona ótrúlegri söngrödd. "Queen of soul" byrjaði að syngja í kyrkunni eins og margt fólk í BNA. En gospel tónlistinni hefur hún sínar söng rætur. Ég held að ég myndi nú mæta í kirkju á hverjum sunnudegi ef að söngfuglar á borð við Arethu væru að syngja þar.  

76. Rolling Stones - (I Can't Get No) Satisfacion
Þetta lag þekkja nú allir. En þessu lagi man ég eftir svo langt sem ég man eftir mér. En þegar maður var kominn á þann aldur að maður var farinn að læra ensku þá fór ég einmitt að spá í það hvort það væri vikilega leyfilegt að syngja svona dónalegt. Og jú hehehe... það geta þeir félagar gert. Og þeir gera það manna best. Fjörugt lag hér á ferð!

77. Jimi Hendrix - Foxy Lady
Já hver ætli stúlkan sé sem hann Jimi er að syngja um í þessu lagi. Mig langar að komast að því. Því hún er sjást þokkalegt "fox". Hehe... ne sennilega bara gömul og krumpuð núna, enda langt síðan að þetta lag var samið. Skemmtilegt atriði í Waynes World með þetta lag í undirspili. "Foxy lady here I come babe, I'm comin' to get ya."

78. Radiohead - Karma Police
Er platan O.K. Computer besta plata allra tíma? Kanski... en þetta lag er einmitt á henni, ásamt mörgum öðrum frábærum lögum! Ég á allaveganna alveg frábærar minningar af Radiohead tónleikunum á Hultsfreds festivalen 2003. En þangað fór maður nánast bara vegna þess að þeir voru að spila. Alveg stórkostlegir að sjá á sviði! Það verður að vera á things to do before I die lista allra að sjá þá live, fan or no fan Radiohead live er eitthvað stórkostlegt. 

79. Stereophonics - Mr. Writer
Þessi stórskemmtilega hljómsveit er án efa besta cover band í heimi! Þeir hafa tekið mörg góð lög eins og Angie, Heart Of Gold, Nothing Compares 2 You og Sunny Afternoon og spilað þau alveg frábærlega. En þetta lag er þeirra eigið og er stór skemmtilegt. En þetta er lag er skot á bresku tónlistarpressuna. Þeir félagar eru ekki nógu sáttir við suma skrifendur hjá stóru tónlistarblöðunum. "Mr Writer, why don't you tell it like it is?".

80. Snow Patrol - Somewhere A Clock Is Ticking
Ég ákvað það þegar ég gerði þennan lista að ég myndi ekki vera með nein lög sem ég er nýlega búinn að kynnast. En ég hef hlustað á Snow Patrol síðan í sumar og því ætti ég ekki að hafa þetta lag með en það er bara ekki hægt annað. Þetta lag verður ofar á listanum eftir nokkur ár ef eitthvað er. Alveg hreint magnað lag og ótrúlegur kraftur í því. Platan Final Straw er líka alveg yndisleg og inniheldur mörg góð lög. Mæli með henni! 


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 23:19:27 / stefans

Top 100 listinn

Nr

81. Oasis - Don't Look Back In Anger
Þetta lag er á plötunni (What's The Story) Morning Glory sem er önnur plata Oasis. Frábært lag sem sýnir bítla áhrifin best. Eftir þessa plötu hafa þeir ekki fengið annað en slæma plötudóma hjá gagnrynendum. Þangað til að platan Don't Believe the Truth kom út í fyrrasumar. Svo virðist sem þeir Gallagher bræður séu á réttri leið með að finna gamla formið (enda eru þeir búnir að skipta út hinum meðlimum sveitarinnar). En aðeins framtíðin getur sagt okkur það hvort sveitin nái aftur á toppinn.

82. Neil Young - Alabama
Meistarinn Neil Young hefur gert mörg frábær lög og ég held að þau verði fleiri á mínum lista eftir nokkur ár. Hann er í miklum metum hjá mér en ég hef ekki ennþá náð að hlusta nógu mikið á hann. Þetta lag er á plötunni Harvest.

83. Barry White - My First My Last My Everything
Getur dimmrödduð feitabolla verið álitin kyntákn?... Já ef hann heitir Barry White en kvenþjóðin tryllist þegar hann er nálægt. Þessi magnaði söngvari hefur oft verið spilaður til að koma fólki "in the mood" (mjög ábyrgur fyrir fjölgun mannkyns). Þetta lag kemur sjást flestum í stuð! 

84.  U2 - With Or Without You
Ég held að þetta lag þurfi ekki frekari kynningu. Klárlega besta lagið með þessari stórhljómsveit. Alveg ótrúlega flott lag, flottur bassi, rosalegur kraftur í því út í gegn. En annars þá er ég búinn að fá hálfgert ógeð af Bono og hans áform um að bjarga heiminum, öllum mönnum og dýrum í skóginum. Grow up Bono! Þú ert ekki í Miss World keppni.

85. Rolling Stones - Honky Tonk Women
It's the Stones man! Já þetta er svo sannarlega ein af uppáhalds hljómsveitum mínum! En þetta lag er alveg yndislegt! Svo mikið country eitthvað. En þeir félagar eru alveg ótrúlegir! Þeir verða á sviðinu að rokka þó svo að þeir þurfa að vera með súrefnis kút á bakinu. Engin hlómsveit hefur notið slikra vinsælda í jafn mörg ár og þeir!

86. Bob Dylan - One More Cup Of Coffee
Já ég er nú reyndar hættur í kaffinu, en þetta lag á samt alveg skilið sæti sitt á listanum. Bob mætir hér sterkur til leiks með sitt fyrsta lag á listanum. Skemtilegt lag með honum.

87. David Gray - Falling Down the Mountainside
David er einn af mínum uppáhalds tónlistarmönnum. Þessi snilldar singer/songwriter skrifaði þetta lag um vin sinn sem framdi sjálfsmorð eftir að hafa greinst með taugasjúkdóm. Afar sorglegt en alveg ótrúlega fallegt lag. Góður píanó leikur. En þetta lag er að finna á B-sides disknum hans.

88. Ryan Adams - Cry On Demand
Ryan Adams er án efa minn uppáhalds tónlistarmaður! En ég þoli ekki þegar fólk heldur að hann sé Bryan fuckin Adams... ooooj! Það ætti nú bara að ákæra Kanada fyrir alþjóða glæpi fyrir að eitt að látið svona ógeð eins og Bryan Adams og Celine Dion að komast upp með nauðgun á tónlistinni! Nei Ryan er bara snillingur! Trust me!
En þetta ljúfa lag er hans fyrsta inná þessum lista en alls ekki það síðasta.

89. Sigur Rós - Viðrar Vel Til Loftárása
Já Sigur Rós á sko alveg skilið að vera á þessum lista sama hvað hver segir! Þetta lag er ekkert smá flott. Fallegur píanó leikur og undirliggjandi kraftur í laginu sem byggist svo upp og magnast. Besta lagið með þessari mögnuðu hljómsveit.

90. Red Hot Chili Peppers - Under the Bridge
Já það þekkja allir þetta lag! En þetta er jafnframt það lag með sveitinni sem hefur elst best. En platan Californication var spiluð alveg í tætlur þessvegna er ekkert lag af henni með á þessum lista. Þó svo að þeir hafa átt mörg frábær lög. En þetta lag er á hinni mögnuðu plötu Blood Sugar Sex Magik.


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 13:31:39 / stefans

Top 100 listinn

Nr

91. R.E.M. - Everybody Hurts
Þetta er eina lag R.E.M. en það má svosem deila um það. En mér finnst þetta vera besta lagið með þeim. Fallegt lag og góður texti.

92. Rachel Yamagata - Worn Me Down
Það hafa sjást fæstir heirt í þessari ungu stúlku. En þeir sem hafa ekki gert það ættu að gera það. En snillingar á borð við Ryan Adams, Jeff Buckley og PJ Harvey hafa haft mikil áhrif á hana og það er hægt að heyra það á tónlist hennar.

93. Counting Crows - Mr. Jones
Alveg hreint frábært lag. En ég mæli með acoustic útgáfunni af þessu lagi því það er betra. Þetta er lag sem gleymdist að semja á sjötugasta áratugnum.

94. Oasis - Don't Go Away
Meistararnir Oasis mæta hér sterkir til leiks með fyrsta lag sitt á þessum lista. En þeir munu koma við sögu oftar, enda eru þeir mín uppáhalds hljómsveit. Þeir sem fíla þá ekki kunna bara ekki gott að meta. Eins og þeir sem fá sér frekar bjór heldur en gott rauðvín með matnum.

95. Aerosmith - Amazing
Þetta lag er tekið af plötunni Get A Grip sem er ein fyrsta plata sem ég eignaðist. En þetta lag fjallar um að koma sér uppúr eiturlyfja neyslu. Sem þeir félagar gerðu eftir langan tíma á kafi í dópinu. Alveg hreint magnaður texti! "And how high can you fly with broken wings?".

96. The Pixies - Where Is My Mind?
Já það er spurningin! Frábært lag frá Pixies, en þetta er reyndar eina lag þeirra á þessum lista. En engu að síður frábært. Hver man ekki eftir atriðinu í Fight Club þar sem þetta lag var spilað.

97. Jose González - Heartbeats
Þessi sænski singer/songrwriter snillingur heiðraði okkur íslendinga með nærveru sinni á Airwaves. En þeir sem sáu hann í Þjóðleikhúskjallaranum eiga ekki eftir að gleyma því í bráð! En hann hefur notið vinsælda í bretlandi m.a. þar sem plata hans Veneer hefur selst vel. Svo varð þetta lag heims frægt þegar Sony notaði það í auglýsingu fyrir nýju Vega sjónvörpin (þarna með skopparaboltunum).

98. Robbie Williams - Come Undone
Enn eitt lagið um eiturlyf. En þetta lag er eitt það besta sem snillingurinn Robbie hefur sent frá sér. " They're selling razor blades and mirrors in the street". Frábær texti.

99. Led Zeppelin - Dazed And Confused
Það eru sjást einhverjir hneykslaðir yfir því að þetta lag sé ekki hærra á listanum. En það eru bara mörg önnur lög betri þó svo að þetta lag sé algjör snilld. " Lots of people talking, few of them know, soul of a woman was created below!" Var hægt að segja þetta betur?... Nei held ekki!

100. Bruce Springsteen - Streets Of Philadelphia
Þetta lag er að mínu mati besta lagið með the Boss. En þegar ég var að vinna við hellulagnir í fyrra sumar þá var ég með þetta lag í spilaranum þegar ég var að klára að vinna eina sumar nótt. Kyrrðin var algjör og himin blár eins og gerist bara um mitt sumar. Ég staldraði við í smá stund og hlustaði bara á lagið og það var alveg mögnuð tilfinning að vera þarna kl hálf 2 að nóttu. Þetta var sko "moment!"


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 14:35:01 / stefans

Top 100 listinn

Jæja gott fólk... þá er komið að því. Eftir miklar pælingar og vangaveltur fram og tilbaka þá er ég búinn að gera minn Top 100 lista yfir bestu lög allra tíma og er nokkuð sáttur við hann! Þetta var sko alls ekki létt enda var fullt af lögum sem að maður vildi hafa þarna sem einfaldlega komust bara ekki því þetta er jú bara 100 kvikyndi!
En ég ætla ekki að birta listann allan í heilu lagi heldur ætla ég að taka þetta svona hægt og rólega. 10 lög á hverjum degi... byrja neðst að sjálfsögðu. Ætla að skrifa eitthvað stutt um hvert lag.
En svo langaði mér til að henda inn nokkrum lögum sem komust næstumþví inná listan en hröpuðu útaf á síðustu stundu.

David Bowie - Ziggy Stardust (believe it or not komst ekki)
Jonathan Rice - So Sweet
Neil Young - Words
Kent - 747
Van Morrison - Jackie Wilson Said


ATH... var búinn að skrifa heil langt um fyrstu 10 lögin... en svo hvarf þetta bara þegar ég ýtti á staðfesta! Þetta helvítis djöfulsins crap kerfi!!! Andskotans helvíti!
Jæja skrifa þetta seinna er of pirraður núna til að geta gert það aftur!

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 00:45:55 / stefans

Music... Sweet music

Jæja gott fólk. Það eru nokkir dagar liðnir frá síðustu "alvöru" færslunni minni hérna. Já skólinn er á fullu og verkefna vinnan er byrjuð af fullum krafti! Jájá nóg um það... svo er maður búinn að flytja í Grafarholtið líka. Já... "La famiglia" er flutt á klakan og búin að yfirgefa svía ríki. Enda var það örugglega ágætis hugmynd þegar við lítum á ástandið í dag og yfirvofandi borgarastyrjöld í norðurlöndum útaf Muhammed og hans friðsamlegu dyrkendur, eða þannig. Já þetta er nú bara tímasprengja sem bíður eftir því að sprengja sjálfan sig og aðra. Usss... þetta er rosalegt... ekki langar mig að fá Al Qaida í heimsókn. En ef þessir andskotans hryðjuverkamenn skulu voga sér að sprengja Tuborg og Carlsberg verksmiðjurnar í Danmörku þá brjálast ég og mæti persónulega með haglara í hendi. :klikk:
Jæja nóg um þetta bull.

Ég er núna að gera minn top 100 lista yfir bestu lög allra tíma. Já ég veit... ég er nörd og á mér ekkert líf... en svona er þetta. maður verðu að hafa eitthvað að dunda sér við og ég hef mikinn áhuga á tónlist. Fer ekki einusinni út með rulsið án þess að hafa MP3 spilarann með mér ;)
Ég er sem sagt að leggja loka hönd á listann en áður en herlegheitin verður birt þá ætla ég aðeins að melta þetta og ég vill endilega að fólk setji sinn top 5 lista hérna fyrir neðan inná comments. Svona bara til að maður gleymi ekki einhverju svakalegu lagi.

Þannig að allir sem koma hérna við verða að spýta út úr sér sinn Top 5 lista yfir bestu lög allra tíma. ÞAÐ ER SKYLDA!


» 13 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 22:12:13 / stefans

ISN'T ENGLISH A FUNNY LANGUAGE ?

There is no egg in eggplant or ham in hamburger; neither apple nor pine in  pineapple...
Is cheese the plural of choose?
If teachers taught, why didn't preachers praught?
If a vegetarian eats vegetables, what does a humanitarian eat?
In what language do people recite at a play, and play at a recital?
Ship by truck, and send cargo by ship?
Have noses that run and feet that smell?
Park on driveways and drive on parkways?
                                                                                                                                         
Sweetmeats are candies, while sweetbreads, which  aren't sweet, are meat.
We take English for granted.  But if we  explore its paradoxes, we find that quicksand can work slowly,  boxing rings are square, and a guinea pig is neither from Guinea nor is it a pig.
And why is it that writers write, but fingers don't fing, grocers don't groce, and hammers don't ham?                                                                                                                                                           
If the plural of tooth is teeth, why isn't the plural of booth beeth?
One goose, 2 geese. So, one moose, 2 meese?
One index, two indices?
                                                                                                                    
How can the weather be hot as hell one day and cold as hell another?
When a house burns up, it burns  down.                                                                                            
You fill in a form by filling it out, and an alarm clock goes off by going on.
When the stars are out, they are visible, but when the lights are out, they are invisible.
And why, when I wind up my  watch, I start it, but when I wind up this essay, I end it?
.English muffins were not invented in England or French fries in France.                                                                                                                                                 

How can 'slim chance and a fat chance' be the same, while  ' wise man and a wise guy' are opposites?

 

Now i know why i failed in english. 

 It's not my fault but the silly language doesn't quite know whether it's coming or going

 




» 1 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 20:35:59 / stefans

Spurninga leikur!

Þar sem innrás íslendinga á hið enska konungs veldi er nú í fullum gangi þá datt mér það í hug að íslendingar verða að læra mælsku íbúa eyjunnar. Þess vegna fynnst mér að allir ættu að taka sig til og læra að tala cockney ensku. Það getur komið sér vel :D

Hægt er að byrja námið með því að ýta á tengilinn hérna vinstra meginn.

Svo kemur ein æfing... svarið því hvað þetta þýðir:

Do yew wan'ter go ter da Ringo and get a few Britneys. Sure mate i just 'ave ter go ter da Tin Tank an' get some Bread and Honey. Know what I mean?

Vegleg verlaun í boði fyrir þann fyrsta sem leysir þetta og skrifar þetta á venjulegri ensku í comments. :lol:

Ath... sendi ekki vinninga út á land, vinnings hafi verður að koma til mín.

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 23:43:04 / stefans

Einn lúmskur

Did you hear about the lawyer hurt in an accident?
An ambulance stopped suddenly.
:lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4